Sir Alex Ferguson hefur rætt opinskátt um heilsu sína og ótta við heilabilun í sjaldgæfu viðtali.
Hinn 84 ára gamli fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United segir að reynsla hans úr fótboltanum hafi valdið honum áhyggjum, sérstaklega vegna þess hversu mikið hann skallaði boltann á leikmannaferli sínum.
„Ég hef haft áhyggjur af þessu sjálfur því ég skallaði boltann mikið. Það gerðu allir knattspyrnumenn,“ sagði Ferguson í samtali við The Observer.
Ferguson hefur einnig stutt bróður sinn Martin, sem glímir við heilabilun, og meðal annars keypt hús í Glasgow til að geta verið nær honum.
Hann hefur auk þess stutt góðgerðarsamtök sem vinna að rannsóknum á heilabilun, þar á meðal Race Against Dementia.
Ferguson segir tónlist hafa haft jákvæð áhrif á líðan bróður síns og að ákveðin lög geti kallað fram minningar.
„Hann þekkir mig enn, sem er frábært,“ sagði Ferguson.
Skotinn stýrði Manchester United frá 1986 til 2013 og vann meðal annars 13 Englandsmeistaratitla og tvo Meistaradeildartitla með félaginu.