433

Nafngreina manninn sem braut kynferðislega á þekktum knattspyrnumanni

Mynd
Carroll og kærasta hans, Lou Teasdale.

Andy Carroll, fyrrverandi framherji Liverpool og enska landsliðsins, hefur staðfest að danskennari að nafni Kevin Adams hafi beitt hann kynferðisofbeldi árið 2019.

Adams var dæmdur í Chelmsford Crown Court árið 2023 og hlaut 20 mánaða fangelsisdóm. Nafn hans kom fram í opinberum dómsgögnum og í kjölfarið ákvað Carroll að staðfesta að um væri að ræða manninn sem hann fjallar um í nýrri sjálfsævisögu sinni.

Mynd

„Nú þegar Kevin Adams hefur verið nafngreindur í dómsgögnum get ég staðfest það,“ sagði Carroll við The Sun.

Carroll lýsir atvikinu í bókinni Owning It en hafði þar ekki nafngreint gerandann. Hann segir reynsluna hafa haft gríðarleg áhrif á sig og sína nánustu og að réttarhöldin hafi verið honum afar erfið.

Adams kom meðal annars fram í sjónvarpsþættinum Fame Academy á BBC árið 2002.

Carroll segist nú vilja reyna að loka þessum kafla í lífi sínu og biður fólk um að forðast að deila myndum af Adams við hlið hans í umfjöllun um málið.