433

Manchester-borg sökuð um vinagreiða við eigendur City - Fengu forgang að landsvæði

Mynd
Sheikh Mansour (fyrir miðju).

Eigendur Manchester City frá Abu Dhabi eru sagðir hafa fengið sérstakan forgang að fasteignaverkefnum í Manchester samkvæmt samningi sem gerður var við borgaryfirvöld árið 2015.

Samkvæmt umfjöllun Sunday Times fékk Abu Dhabi United Group, sem er í eigu Sheikh Mansour, svokallaðan forkaupsrétt að landi sem borgin hugðist selja til uppbyggingar í Ancoats og New Islington.

Samningurinn var til tíu ára og rann út árið 2025. Hann var hluti af samstarfsverkefninu Manchester Life sem var ætlað að stuðla að íbúðauppbyggingu og endurnýjun hverfa.

Gagnrýnendur hafa lýst fyrirkomulaginu sem sérstökum „vinagreiða“ og haldið því fram að breskir verktakar hafi ekki notið sambærilegs aðgangs.

Borgaryfirvöld í Manchester hafna þeirri túlkun og segja samstarfið hafa skilað miklum árangri. Meðal annars hafi verið byggðar um 1.500 íbúðir, tvær sögulegar verksmiðjubyggingar varðveittar og um 30 þúsund fermetrar af atvinnuhúsnæði orðið til.

Málið kemur upp skömmu eftir að Manchester City var fundið sekt um alvarleg brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Félagið hafnar allri sök og hefur áfrýjað niðurstöðunni.

Fjárfestingar frá Abu Dhabi í Manchester og víðar í Bretlandi hafa síðan komist undir aukið smásjárljós.