433

Klopp heldur áfram að elda grátt silfur við þýsku pressuna

Mynd
Getty Images

Jurgen Klopp, landsliðsþjálfari Þýskalands, lenti aftur upp á kant við fjölmiðla eftir spurningar um fjarveru Joshua Kimmich úr liðinu.

Kimmich var í fyrsta landsliðshópi Klopp en miðjan með Tom Bischof, Aleksandar Pavlovic og Florian Wirtz þótti standa sig mjög vel í 2-0 sigri gegn Serbíu.

Klopp var ósáttur þegar umræðan fór strax að snúast um Kimmich.

„Við spiluðum mjög góðan leik. Af hverju ætti alltaf bara einn leikmaður að spila? Þú verður að vera í góðu formi til að spila, alveg eins og hjá félagsliði,“ sagði Klopp.

Hann bætti við að lið þyrfti mismunandi tegundir leikmanna, bæði leiðtoga, vinnuhesta og skapandi menn.

Klopp hefur tekið við Þýskalandi að nýju eftir hlé frá þjálfun og hefur þegar sýnt að hann er tilbúinn að verja leikmenn sína gegn umfjöllun fjölmiðla.