433

Juventus vill kaupa meiddan leikmann Liverpool

Mynd

Juventus hefur áhuga á Giovanni Leoni, 19 ára varnarmanni Liverpool, samkvæmt Gazzetta dello Sport.

Ítalska stórveldið vill fjölga ítölskum leikmönnum í leikmannahópnum og Leoni er sagður ofarlega á óskalistanum.

Leoni gekk til liðs við Liverpool sem einn efnilegasti ungi varnarmaður Ítalíu en tímabil hans hefur litast mjög af meiðslum. Hann sleit krossband og hefur verið frá keppni í langan tíma vegna þeirra meiðsla.

Þrátt fyrir það virðist Juventus líta á hann sem spennandi kost til framtíðar og félagið fylgist grannt með stöðu hans.

Óvíst er þó hvort Liverpool hafi nokkurn áhuga á að selja leikmanninn, sérstaklega í ljósi aldurs hans og möguleika til framtíðar.