433

Gylfi spurður út í ákvörðun Arnars - „Ætli það ekki“

Mynd
Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd: DV/KSJ

Það ráku margir upp stór augu þegar fréttir bárust af því að Gylfi Þór Sigurðsson myndi ekki byrja leik Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í gær.

Gylfi kom inn á sem varamaður þegar um korter var eftir í fyrsta leik, jafntefli gegn Eistlandi, um síðustu helgi og lét strax til sín taka. Hann byrjaði þá og var frábær í leik tvö gegn Lúxemborg. 

Sá leikur vannst 3-0, eins og leikurinn við Búlgaríu í gær, en þá var Gylfi kominn aftur á bekkinn. Í viðtali við 433.is eftir leik í gær var hann spurður að því hvenær hann vissi að hann myndi ekki byrja leikinn.

„Það rennur allt í eitt. Það var bara í gær held ég þegar við tókum fundinn um Búlgarana og vorum að fara yfir þá,“ svaraði Gylfi léttur, en hann kom inn á og spilaði um hálftíma í gær.

Er ástæðan sú að verið er að dreifa álaginu?

„Ég veit það ekki, jú ætli það ekki. Þetta eru fjórir leikir á skömmum tíma. Það er gott að geta dreift álaginu,“ sagði hann enn fremur.

Ísland mætir Eistlandi á ný ytra á þriðjudag og er það síðasti leikurinn af fjórum í þessum landsleikjaglugga. Ísland er á toppi riðilsins með 7 stig, tveimur meira en Eistar sem sitja í öðru sæti.

Riðlakeppni Þjóðadeildarinnar klárast svo með tveimur leikjum, gegn Búlgaríu og Lúxemborg, í næsta mánuði. 

Viðtalið við Gylfa eftir leik í gær má sjá í heild í spilaranum hér ofar.