433

Gómaður á brókinni á hóteli með gyðju - Málið mikið áfall fyrir fjölskylduna

Mynd

Olivier Giroud, fyrrverandi framherji Arsenal og Chelsea, hefur í gegnum tíðina þurft að takast á við ýmislegt utan vallar og eitt þekktasta málið kom upp árið 2014.

Þá greindu breskir fjölmiðlar frá því að Giroud hefði hitt fyrirsætuna Celia Kay á hóteli þar sem leikmenn Arsenal dvöldu fyrir leik gegn Crystal Palace.

Giroud hafnaði því fyrst að Kay hefði komið upp á herbergi hans en síðar birtust myndir sem sýndu hann á nærfötunum á hótelherberginu.

Mynd
Olivier Giroud / Getty

Í kjölfarið bað Giroud eiginkonu sína, fjölskyldu, liðsfélaga, Arsene Wenger og stuðningsmenn Arsenal opinberlega afsökunar.

„Ég gerði mistök og þarf nú að berjast fyrir fjölskyldu minni og félaginu og fá fyrirgefningu þeirra,“ sagði hann á sínum tíma.

Giroud hélt því þó síðar fram að hann hefði ekki framið hjúskaparbrot og Kay sagði einnig að þau hefðu ekki sofið saman.

Málið vakti mikla athygli í Englandi en Giroud tókst að snúa sér aftur að fótboltanum. Hann vann síðar FA-bikarinn með Arsenal, Meistaradeildina með Chelsea, ítalska meistaratitilinn með AC Milan og varð heimsmeistari með Frakklandi árið 2018.

Giroud hefur nú gefið sterklega í skyn að yfirstandandi tímabil verði hans síðasta sem atvinnumaður.