U21 landslið karla átti að halda til Færeyja í dag, sunnudag, þar sem íslenska liðið mætir því færeyska á þriðjudag í mikilvægum leik í undankeppni EM.
Fluginu hefur verið aflýst þar sem ekki er hægt að lenda í Færeyjum vegna veðurs. Vonir standa til þess að fært verði á mánudag.
KSÍ, færeyska knattspyrnusambandið og UEFA eru upplýst um stöðuna.