Chelsea er sagt vera fremst í flokki þeirra félaga sem fylgjast með Alex Scott, miðjumanni Bournemouth.
Samkvæmt The Telegraph reyndi Chelsea að kaupa hinn 23 ára gamla Scott síðasta sumar og bauð þá meira en 60 milljónir punda. Bournemouth hafnaði hins vegar tilboðinu.
Scott er á sínu fjórða tímabili með Bournemouth og er samningsbundinn félaginu til sumarsins 2028.
Hann vakti mikla athygli um helgina þegar hann byrjaði sinn fyrsta landsleik fyrir England í 7-0 sigri gegn Króatíu.
Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, hrósaði Scott mikið eftir leikinn.
„Fyrsti byrjunarliðsleikurinn og þvílík byrjun. Hann er svo þægilegur á boltanum og ákvarðanataka hans er á hæsta stigi,“ sagði Tuchel.
„Hann spilar af miklu sjálfstrausti, vinnusemin án boltans er frábær og hann er einfaldlega með allan pakkann.“
Chelsea heldur áfram að fylgjast grannt með þróun hans.