433

Einkunnir eftir sannfærandi sigur gegn slökum Búlgurum - Fyrirliðinn bestur

Mynd

Ísland vann 3-0 sigur á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildar Evrópu í dag og tryggði sér mikilvægan sigur á heimavelli.

Mótspyrnan var lítil og íslenska liðið áfram á toppi deildarinnar með sjö stig.

Íslenska liðið var sterkari aðilinn lengst af og náði að skapa sér nokkur góð færi áður en það braut loks ísinn. Orri Steinn Óskarsson skoraði bæði mörk liðsins. Orri brenndi einnig af vítaspyrnu seint í leiknum.

Mikael Egill Ellertsson skoraði svo þegar komið var fram í uppbótartíma.

Búlgarar reyndu að svara fyrir sig en íslenska vörnin stóð vaktina vel og Hákon Rafn Valdimarsson þurfti ekki að sækja boltann í netið.

Arnar Gunnlaugsson gerði sex breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn og fékk góð viðbrögð frá sínum mönnum. Aron Einar Gunnarsson, Hörður Björgvin Magnússon og Andri Fannar Baldursson voru meðal þeirra sem komu inn í liðið.

Sigurinn gefur Íslandi dýrmæt stig í riðlinum og gott veganesti fyrir næsta verkefni sem er úti gegn Eistum á þriðjudag. Eistar eru með fimm stiga í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Íslandi.

Hákon Rafn Valdimarsson - 7
Búlgarar voru lélegir en við reyndum að gefa þeim nokkur mörk. Þá steig Hákon upp og bjargaði.

Mikael Neville Anderson - 7
Kraftmikill og gerði vel í að leggja upp annað markið.

Aron Einar Gunnarsson (´46) - 6
Komst með ágætum frá sínu, smá jask í byrjun en það lagaðist fljótt.

Hörður Björgvin Magnússon - 6
Flottur leikur hjá Herði í hjarta varnarinnar.

Mikael Egill Ellertsson - 7
Fékk ósanngjarnt gult spjald í fyrri hálfleik, skilaði sínu og tók markið vel í restina.

Andri Fannar Baldursson (´61) - 6
Solid frammistaða og langt síðan hann hefur byrjað keppnisleik með landsliðinu. Gerði sitt.

Ísak Bergmann Jóhannesson - 7
Algjör klókindi í fyrsta markinu þegar hann lét boltann fara til Orra.

Hákon Arnar Haraldsson - 8 
Er bara orðinn mikilvægasti leikmaður liðsins og sannaði ágæti sitt enn á ný í dag. Stjórnaði leik liðsins

Jón Dagur Þorsteinsson (´61) - 6
Fínn kraftur en vantaði oft herslumuninn til að hlutirnir myndu ganga upp.

Orri Steinn Óskarsson - 8 (Maður leiksins)
Tók færin sín vel en vítaspyrnan var léleg, átti að fullkomna þrennuna. Gerði vel í að leggja upp þriðja markið.

Arnór Sigurðsson (´46) - 5
Svona næstum því leikur hjá Arnór sem var kippt af velli í hálfleik.

Varamenn:

Andri Lucas Guðjohnsen (´46) 7
Daníel Leó Grétarsson (´46) 6
Gylfi Þór Sigurðsson (´61) 6
Guðlaugur Victor Pálsson (´61) 6