433

Sjáðu myndbandið - Þegar Eiður Smári fór í aðgerð og fékk nýtt hár

Mynd

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi landsliðsmaður og núverandi knattspyrnuþjálfari og sparkspekingur, kemur fyrir í nýrri auglýsingu tyrknesku hárígræðsluklíníkurinnar Dr. Cinik.

Í myndbandinu er fylgst með Eiði þegar hann fór í hárígræðslu í Istanbúl á síðasta ári. Þar má meðal annars sjá hvernig ný hárlína hans var teiknuð upp fyrir aðgerðina og Eið ræða við lækninn áður en ferlið hófst.

„Hlakka til hennar. Dálítið stressaður, verð ég að segja. Aldrei gert þetta áður,“ segir Eiður í myndbandinu.

Læknirinn og Eiður skoða einnig gamla mynd af honum úr landsleik Íslands gegn Þýskalandi árið 2003. „Bestu tímarnir,“ segir læknirinn, áður en Eiður svarar: „Fáum þá aftur.“

Í lok auglýsingarinnar er síðan sýnt hvernig hár Eiðs lítur út eftir ígræðsluna.