Manchester United hefur sett sig í samband við Manchester City varðandi bakvörðinn Rayan Ait-Nouri.
Blaðamaðurinn Ben Jacobs greinir frá þessu, en United hefur verið orðað við fjölda vinstri bakvarða í sumar. Flestir eru sammála um að styrkingar sé þörf í þeirri stöðu.
Það er alls óvíst hvort nokkuð verði af skiptum Alsíringsins, enda lokar félagaskiptaglugginn nú klukkan 22 og því lítill tími til stefnu.
Ait-Nouri gekk í raðir City frá Wolves síðasta sumar. Hann er þó ekki í stóru hlutverki.