433

Frysta milljarða í eigu ensku úrvalsdeildarinnar - Skoða tengsl við fyrirtæki

Mynd
Getty

Breska National Crime Agency, NCA, hefur fryst rúmlega tíu milljónir punda sem tengjast samstarfi ensku úrvalsdeildarinnar við stafræna leikjafyrirtækið Sorare.

Málið tengist rannsókn á því hvort starfsemi Sorare feli í sér óleyfilega fjárhættuspilastarfsemi. Fyrirtækið hefur áður verið áberandi í knattspyrnuheiminum og nöfn á borð við Lionel Messi, Kylian Mbappé og Zinedine Zidane hafa tengst því sem fjárfestar, sendiherrar eða ráðgjafar.

Samstarf ensku úrvalsdeildarinnar og Sorare hófst árið 2023 og var talið vera um 120 milljóna punda samning til fjögurra ára. Samningnum lauk hins vegar eftir síðasta tímabil.

Samkvæmt The Sun fékk NCA úrskurð í janúar 2025 sem gerði stofnuninni kleift að frysta rúmlega tíu milljónir punda á reikningi Premier League.

NCA segir tilganginn vera að koma í veg fyrir að fjármunirnir hverfi á meðan hugsanleg tengsl þeirra við meint brot þriðja aðila eru rannsökuð.

Sorare neitar sök og segir leik sinn byggjast á kunnáttu en ekki heppni.

Enginn grunur beinist að ensku úrvalsdeildinni sjálfri.