433

Ellefu leikmenn sem gætu farið frá Chelsea í dag

Mynd
Mynd: Chelsea

Chelsea stendur frammi fyrir annasömum lokaspretti á félagaskiptamarkaðnum en framtíð ellefu leikmanna félagsins er enn óljós þegar stutt er í lok gluggans.

Enzo Fernandez er stærsta nafnið á listanum. Manchester City hefur verið sterklega orðað við Argentínumanninn og Chelsea hefur þegar skoðað mögulega arftaka. Manu Koné hjá Roma er sagður ofarlega á listanum, auk Lamine Camara hjá Monaco og Adam Scott hjá Bournemouth.

Robert Sánchez gæti einnig farið eftir komu Emiliano Martínez frá Aston Villa. Sánchez missti sæti sitt í liðinu og hefur verið orðaður við Tottenham.

Pedro Neto er annað stórt nafn sem gæti yfirgefið Stamford Bridge. Liverpool og félög í Sádi-Arabíu hafa verið tengd við Portúgalann og Xabi Alonso, stjóri Chelsea, vildi ekki tryggja að hann yrði áfram.

Mykhailo Mudryk er talinn líklegur til að fara á láni en Marc Guiu er nálægt varanlegum félagaskiptum til RB Leipzig.

David Datro Fofana er sömuleiðis á leið frá félaginu og er búist við að hann gangi til liðs við Servette í Sviss.

Gabriel Slonina hefur verið orðaður við Celtic en fyrirhugað lán Landon Emenalo þangað er í óvissu vegna meiðsla.

Þá eru Shim Mheuka, Aaron Anselmino og Dario Essugo einnig tiltækir á láni. Strasbourg hefur áhuga á þeim síðarnefndu tveimur.

Chelsea þarf því að hafa hraðar hendur ef félagið ætlar að minnka stóran leikmannahóp sinn áður en glugginn skellur í lás.