Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
KR er komið sex stigum á eftir Íslandsmeisturum Víkings í Bestu deild karla og hótar því að búa til spennu á toppnum.
„Mögulega fáum við eitthvað sem við sáum ekki fyrir, toppbaráttu,“ sagði Hörður.
„Maður myndi borga ágætis upphæð fyrir að fá úrslitaleik Víkings og KR hérna í haust,“ sagði Helgi.
„Það gæti orðið spenna á toppi og botni, sem við höfum ekki horft upp á áður,“ sagði Hörður.