433

Fjölmargir minnast goðsagnar sem er fallin frá

Mynd
Jimmy Rimmer.

Jimmy Rimmer, fyrrverandi markvörður Aston Villa, Manchester United og Arsenal, er látinn 78 ára að aldri.

Rimmer var í leikmannahópi Manchester United sem varð Evrópumeistari árið 1968 og lék stórt hlutverk þegar Aston Villa vann sömu keppni árið 1982. Hann hóf úrslitaleikinn gegn Bayern Munchen en þurfti að fara af velli eftir aðeins níu mínútur vegna hálsmeiðsla.

Rimmer hafði árið áður leikið alla leiki Villa þegar liðið varð Englandsmeistari árið 1981.

Hann lék 229 deildarleiki fyrir Aston Villa og lék einnig með Arsenal og Swansea. Rimmer átti einn landsleik fyrir England.

Aston Villa, Manchester United og Arsenal hafa öll minnst Rimmer eftir andlát hans.