Mark Walter, einn af meðeigendum Chelsea, er sagður hafa áhuga á að selja minnihlutahlut sinn í enska úrvalsdeildarfélaginu.
Walter á 12,8 prósenta hlut í BlueCo, eignarhaldsfélaginu sem á Chelsea, en samkvæmt Wall Street Journal hefur hann glímt við fjárhagsleg vandamál að undanförnu.
Bandarísk yfirvöld rannsaka nú hvernig milljarðar dollara í lánum til fyrirtækja tengdum Walter og samsteypu hans, TWG Global, enduðu í bókum tryggingafélaga hans.
Walter hefur þegar selt Los Angeles Lakers fyrir metupphæð og er nú sagður skoða möguleikann á að losa sig einnig við hlut sinn í Chelsea.
Hann varð meðeigandi Chelsea árið 2022 þegar hópur undir forystu Todd Boehly og Clearlake Capital keypti félagið.
Walter og Boehly eiga hvor um sig 12,8 prósent í BlueCo en Clearlake hefur meirihlutaeign.
Óljóst er á þessari stundu hvort formlegt söluferli sé hafið eða hverjir gætu haft áhuga á hlutnum.