Helgi Fannar og Hörður Snævar fóru yfir allt það helsta í Íþróttavikunni á 433.is.
Nýjung verður í Evrópuboltanum í haust þar sem landsleikjahlé mun ná yfir tvær helgar og því verður langt hlé á stærstu deildunum á meðan.
„Ég ætla ekki að vera leiðinlegur en það verður brekka. Enski nýfarinn af stað, sem heillar mann alveg. En svo taka við þrjár vikur af Þjóðadeild C.
En þetta eru mikilvægir leikir fyrir Arnar og liðið. Auðveldasta leiðin inn á Evrópumótið er að vinna þessa Þjóðadeild C,“ sagði Hörður, en Ísland féll niður í C-deildina í fyrra.