Max Eberl, íþróttastjóri Bayern München, segir að félagið muni ekki ná samkomulagi við Aston Villa um Joao Palhinha á þeim forsendum sem nú eru uppi.
Villa hefur sýnt miðjumanninum mikinn áhuga og rætt hefur verið um lánssamning með kauprétti. Bayern vill hins vegar aðeins ræða varanlega sölu á Palhinha eins og staðan er núna.
Palhinha er sagður sjálfur áhugasamur um að fara til Aston Villa en hann lék á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili.
„Við höfum lesið að Aston Villa hafi haft samband við okkur vegna João og það er rétt,“ sagði Eberl.
„En við munum ekki geta náð samkomulagi við Aston Villa. Þetta gengur einfaldlega ekki upp við núverandi aðstæður.“
Eberl bætti við að þrír aðilar þyrftu að vera sammála um næstu skref og eins og staðan er nú sé engin lausn í sjónmáli.