433

Arsenal í viðræður um fyrrum varnarmann Liverpool

Mynd
Getty Images

Arsenal hefur sýnt Jarell Quansah, varnarmanni Bayer Leverkusen, áhuga samkvæmt helstu miðlum.

Viðræður eru enn á frumstigi en heimildir enskra miðla telja að mögulegt sé að samningar náist um hinn 23 ára gamla Quansah. 

Arsenal leitar að fjölhæfum varnarmanni sem getur bæði spilað í miðverði og hægri bakverði.

Félagið hefur einnig átt í viðræðum við Aston Villa um Ezri Konsa en töluvert ber í milli. Villa vill um 60 milljónir punda á meðan Arsenal metur Konsa nær 40 milljónum.

Liverpool á möguleika á að jafna öll tilboð sem berast í Quansah samkvæmt ákvæði í samningnum þegar hann var keyptur til Leverkusen frá enska félaginu.

Quansah lék 44 leiki fyrir Leverkusen á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk.