Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, segist ánægður með hvernig Marcus Rashford hefur komið til baka inn í leikmannahóp félagsins.
Rashford er mættur aftur til æfinga hjá United eftir að hafa verið á láni hjá Barcelona á síðustu leiktíð. Framtíð hans hefur verið mikið til umræðu en Carrick virðist opinn fyrir því að gefa honum tækifæri á ný.
„Rashford er okkar leikmaður og hann hefur komið frábærlega til baka,“ sagði Carrick.
„Ég hef þekkt hann lengi og hann gefur okkur eitthvað aðeins öðruvísi. Við hlökkum til þess að tímabilið hefjist.“
Rashford hefur ekki leikið með United síðan í janúar 2025 en hann á enn tvö ár eftir af samningi sínum við félagið.