433

Eiginkona Messi vekur gríðarlega athygli - Nálgast fertugt í svakalegu formi

Mynd

Antonela Roccuzzo, eiginkona Lionel Messi, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir glæsilegt útlit og góðan líkamlegan styrk.

Antonela sem er 38 ára er dugleg að deila myndum frá daglegu lífi sínu og líkamsrækt en hún er með gríðarlegan fjölda fylgjenda á Instagram. Þar fá aðdáendur reglulega innsýn í líf fjölskyldunnar, ferðalög og æfingar hennar.

Mynd

Messi og Antonela hafa þekkst frá barnæsku í Rosario í Argentínu og samband þeirra nær því langt aftur fyrir þann tíma þegar Messi varð ein stærsta knattspyrnustjarna sögunnar. Þau gengu í hjónaband árið 2017 og eiga saman þrjá syni.

Antonela hefur jafnframt skapað sér sterkt nafn utan fótboltans og starfað með ýmsum þekktum tísku- og lífsstílsmerkjum.

Mynd

Messi hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna inni á knattspyrnuvellinum en fjölskyldan hefur ávallt verið stór hluti af lífi Argentínumannsins utan hans.