433

Staðfestir að hann sé komin með nýja konu - Fékk nóg af andlegu ferðalagi fyrrverandi

Mynd

Matthijs de Ligt, varnarmaður Manchester United, hefur staðfest að hann sé að kynnast hollensku fyrirsætunni Amber Yuusef eftir að myndir af þeim saman birtust á samfélagsmiðlum.

De Ligt og Yuusef sáust saman í Ibiza fyrr í sumar og í kjölfarið fóru sögusagnir á kreik um að þau væru í sambandi. Hollenski landsliðsmaðurinn ákvað að tjá sig um málið og staðfesti að þau væru að kynnast.

Mynd

„Venjulega finnst mér engin þörf á að svara svona hlutum en í þetta skiptið geri ég það. Amber og ég erum að kynnast betur og viljum gjarnan fá að gera það í friði,“ sagði De Ligt.

Fréttirnar koma um ári eftir að De Ligt og AnneKee Molenaar slitu sambandi sínu. Þau giftu sig árið 2024 eftir að hafa verið saman um árabil.

Mynd

Hollenskir fjölmiðlar greindu frá því á sínum tíma að fyrirhugaðri brúðkaupsveislu þeirra á Ítalíu hefði verið aflýst og að þau hefðu ákveðið að fara hvort í sína áttina. Þar kom fram að De Ligt hafði fengið ógeð af andlegu ferðalagi AnneKee.

De Ligt og Molenaar kynntust þegar hann var ungur leikmaður hjá Ajax en hann bað hennar árið 2023.

De Ligt, sem varð 27 ára á miðvikudag, hefur verið hjá Manchester United frá sumrinu 2024 eftir félagaskipti frá Bayern München.

Mynd