433

Yfirgefur Evrópu eftir 18 ár

Mynd
Alexis Sanchez fagnar marki með Arsenal á sínum tíma. Getty Images

Alexis Sanchez hefur yfirgefið evrópska knattspyrnu eftir 18 ár og gengið til liðs við Montreal í MLS-deildinni.

Hinn 37 ára gamli Sanchez kemur til Montreal á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Sevilla rann út. Hann lék 29 leiki á síðustu leiktíð, skoraði fjögur mörk og lagði upp tvö.

Sanchez hélt fyrst til Evrópu árið 2008 þegar hann gekk til liðs við Udinese. Síðar lék hann með Barcelona, Arsenal, Manchester United, Inter, Marseille og Sevilla auk þess að snúa aftur til Udinese tímabilið 2024-2025.

Hann varð meðal annars spænskur meistari með Barcelona og vann enska bikarinn tvisvar með Arsenal.

Alexis fær treyju númer tíu hjá Montreal sem er sem stendur í næstneðsta sæti Austurdeildar MLS.