433

Vill sjá Óskar Hrafn fara aftur erlendis - „Gæti verið búinn eftir tíu ár“

Mynd
Mynd: DV/KSJ

Hjörvar Hafliðason, Dr. Football, telur að Óskar Hrafn Þorvaldsson verði að fara aftur erlendis og reyna á sig þar. Óskar tók við Haugesund í Noregi árið 2024 en hætti eftir nokkra mánuði.

Óskar hefur stýrt KR í tvö ár núna og hefur komið liðinu upp í titilbaráttu eftir góðan sigur á Fram í gær.

„Hann þarf að fara aftur út, eftir tíu ár gæti hann verið búinn," sagði Hjörvar Hafliðason í Dr. Football þætti dagsins.

Hrafnkell Freyr Ágústsson vill sjá Óskar fara aftur út og fá þá fullt traust, eitthvað sem vantaði í Noregi. „Mér finnst hann þurfa klúbb sem er tilbúinn að keyra á þetta sem hann er að gera.„

Hjörvar segir Óskar frábæran í því að taka við brotnum leikmönnum og gera þá góða á nýjan leik. „Það er eitt sem gerir Óskar að góðum þjálfara, hann getur fengið brotna stráka heim erlendis frá og komið þeim af stað.“