433

Vilja lána Mudryk til að koma honum í takt - Hann vill helst vera á Englandi

Mynd

Chelsea er tilbúið að skoða tilboð um lánssamning fyrir Mykhaylo Mudryk nú þegar Úkraínumaðurinn snýr aftur eftir lyfjabann sitt.

Markmiðið er að Mudryk fái reglulegan spilatíma og geti komið sér aftur af stað eftir fjarveruna. Nokkur félög eru sögð fylgjast með stöðu hans.

Félög á Ítalíu hafa sýnt áhuga og franska félagið Strasbourg er einnig nefnt sem mögulegur áfangastaður. Mudryk sjálfur er þó sagður vilja helst vera áfram á Englandi og fara á láni til annars félags í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea er því opið fyrir mismunandi möguleikum varðandi framtíð kantmannsins, en reglulegur spilatími verður lykilatriði þegar tekin verður ákvörðun um hvert hann fer næst.