Sveinn Aron Guðjohnsen (28) hefur skrifað undir hálfs árs samning við Víking eða til 31.12.2026 og ætlar að hjálpa liðinu í lokabaráttunni um íslandsmeistaratitilinn og áframhaldandi sókn okkar í Evrópu.
Kári Árnason yfirmaður knattspyrnumála hafði þetta að segja . „Svenni spilaði sinn síðasta leik í lok apríl þannig að leikformið er kannski ekki uppá 10 en hann hefur æft vel og hefur núna 1-2 vikur til þess að komast í alvöru stand. hann er hungraður og ætlar sér aftur erlendis að spila og gæti þetta verið frábær gluggi fyrir hann að sýna sig og jafnframt hjálpað okkur á öllum vígstöðum," segir Kári.
Þess má geta að afi Sveins, Arnór Guðjohnsen lék fyrir Víking fyrir tæpum 50 árum, áður en hann fór út í atvinnumennskuna.