Sebastian Krug, sem sér um kaup og ráðningar hjá þýska stórliðinu Dortmund, er eftirsóttur af nokkrum félögum í ensku úrvalsdeildinni og annars staðar í Evrópu.
Krug hefur gegnt lykilhlutverki í öflugu starfi Dortmund undanfarinn áratug. Hann kom meðal annars að því að fá Erling Braut Haaland, Jude Bellingham, Jadon Sancho og Jamie Bynoe-Gittens til félagsins.
Dortmund fékk samanlagt um 300 milljónir punda fyrir leikmennina fjóra þegar þeir voru síðar seldir.
Krug var einnig lykilmaður í kaupum Dortmund á Jobe Bellingham frá Sunderland síðasta sumar og er sagður eiga náið samband við Bellingham-fjölskylduna.
Orðspor Krug hefur vaxið mikið undanfarin ár og forráðamenn nokkurra stærstu félaga ensku úrvalsdeildarinnar eru sagðir reglulega leita til hans varðandi leikmannaleit og stefnumótun.
Eftir tæpan áratug hjá Dortmund er Krug nú talinn opinn fyrir nýrri áskorun og er enska úrvalsdeildin sögð líklegur áfangastaður.