Fenerbahce hefur náð samkomulagi við Napoli um kaup á belgíska framherjanum Romelu Lukaku, samkvæmt Sky á Ítalíu.
Kaupverðið er sagt vera um 5,12 milljónir punda auk mögulegra bónusgreiðslna. Lukaku er sagður reiðubúinn að skrifa undir samning við tyrkneska stórliðið.
Brottför Lukaku gæti jafnframt haft áhrif á næstu skref Napoli á leikmannamarkaðnum. Ítalska félagið er sagt þurfa að selja tvo leikmenn áður en það getur gengið frá frekari kaupum.
Gabriel Jesus, framherji Arsenal, er meðal þeirra sem Napoli hefur augastað á. Brasilíumaðurinn er kominn inn á síðasta árið í samningi sínum við Arsenal.
Arsenal er sagt vilja fá á bilinu 18 til 20 milljónir punda fyrir Jesus ef félagið ákveður að selja hann í sumar.