Trent Alexander-Arnold hefur fengið gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að myndband af samskiptum hans við stuðningsmenn Real Madrid fór í dreifingu.
Alexander-Arnold sást sitja í bíl sínum þar sem hann gaf sér tíma til að árita treyju og sitja fyrir á myndum með ungum stuðningsmönnum félagsins.
Þrátt fyrir að hafa orðið við óskum þeirra vakti svipbrigðaleysi Englendingsins athygli og töldu sumir að hann hefði mátt sýna meiri gleði í samskiptunum.
„Hann gæti að minnsta kosti brosað á myndunum með krökkunum,“ skrifaði einn, á meðan annar sagði hann líta út fyrir að vera vansælan hjá Real Madrid.
Alexander-Arnold gekk til liðs við Real frá Liverpool síðasta sumar en fyrsta tímabil hans á Spáni reyndist erfitt. Hann missti af 22 leikjum vegna meiðsla og komst ekki í enska landsliðshópinn fyrir HM.
Hann fær nú tækifæri til að snúa við blaðinu undir stjórn Jose Mourinho en Denzel Dumfries, sem kom til Real í sumar, veitir honum samkeppni um stöðu hægri bakvarðar.
Former Liverpool defender Trent Alexander Arnold showing appreciation to Real Madrid fans. 🙌🏼 pic.twitter.com/vh0jILKHeY
— Anfield Papers (@AnfieldPapers) August 11, 2026