Framherjinn Sveinn Aron Guðjohnsen er á leið í Víking, samkvæmt Vísir.is.
Sveinn Aron er 28 ára og lék síðast með Cavese í ítölsku C-deildinni. Hann hélt fyrst út í atvinnumennsku árið 2018 eftir að hafa leikið með HK, Val og Breiðabliki hér heima.
Síðan þá hefur hann meðal annars leikið með Spezia og Ravenna á Ítalíu, OB í Danmörku, Elfsborg í Svíþjóð, Hansa Rostock í Þýskalandi og Sarpsborg í Noregi.
Víkingur hefur þurft að glíma við mikil meiðsli að undanförnu en Elías Már Ómarsson, Óskar Borgþórsson og Tarik Ibrahimagic hafa allir meiðst alvarlega.
Sveinn Aron verður annar leikmaðurinn sem Víkingur fær til sín fyrir lokasprett tímabilsins en Hrannar Snær Magnússon gekk nýverið til liðs við Íslandsmeistarana.
Víkingur er með sex stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar.