433

Stjórnarformaðurinn talaði við kærustuna og hreinsaði loftið fyrir skiptin - Var öskuill út í félagið fyrir nokkrum mánuðum

Mynd
Dwight McNeil og Megan Sharpley, kærasta hans.

Steve Parish, stjórnarformaður Crystal Palace, hafði samband við kærustu Dwight McNeil til að sættast við hana áður en félagaskipti leikmannsins frá Everton gengu í gegn.

McNeil er kominn til Palace í skiptum fyrir Brennan Johnson sem fer í hina áttina. Þetta er í annað sinn sem Palace reynir að fá McNeil til félagsins.

Hann var hársbreidd frá því að ganga til liðs við Palace í janúar og hafði farið í læknisskoðun. 

Félagaskiptin féllu hins vegar um sjálf sig á lokadegi gluggans þar sem Palace tókst ekki að skila nauðsynlegum pappírum í tæka tíð.

Megan Sharpley, kærasta McNeil, gagnrýndi Palace harðlega í kjölfarið og sakaði félagið um að hafa leikið sér að tilfinningum og andlegri heilsu leikmannsins. Hún sagði McNeil hafa verið niðurbrotinn eftir að hætt hafði verið við skiptin.

Samkvæmt The Times hafði Parish nú samband við Sharpley til að hreinsa loftið áður en McNeil gekk til liðs við félagið.