433

Stjarnan þyngst svakalega og er nær óþekkjanleg - Sjáðu myndirnar

Mynd

Diego Poyet, sonur Gus Poyet fyrrum leikmanns Chelsea og Tottenham, hefur tekið miklum breytingum frá því hann lagði skóna á hilluna fyrir sex árum.

Diego þótti mikið efni hjá Charlton og gekk til liðs við West Ham í ensku úrvalsdeildinni árið 2014. 

Mynd

Ferill hans náði þó aldrei þeim hæðum sem vonast var eftir og eftir dvöl hjá meðal annars Huddersfield, MK Dons, Godoy Cruz og Pafos hætti hann aðeins 25 ára gamall árið 2020.

Nú er Poyet 31 árs og nánast óþekkjanlegur frá árunum sem leikmaður. Hann hefur bætt á sig miklum vöðvamassa, rakað af sér hárið og stundar líkamsrækt af mikilli hörku.

Mynd

Gus Poyet hefur áður sagt að sonur hans geri allt af hundrað prósent metnaði. Hann drekki meðal annars ekkert áfengi, haldi sig frá eftirréttum og fylgi ströngu æfinga- og mataræði.

Mynd