433

Skiptin staðfest - Johnson fer frá Palace eftir nokkra mánuði í skiptum fyrir McNeil

Mynd

Everton hefur gengið frá kaupum á Brennan Johnson frá Crystal Palace en sem hluti af samkomulaginu fer Dwight McNeil í hina áttina og gengur til liðs við Palace.

Johnson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Everton. Hann kveðst afar spenntur fyrir nýju verkefni og segir metnað félagsins hafa ráðið miklu um ákvörðun sína.

„Þetta er risastórt félag og um leið og ég heyrði af áhuganum vildi ég koma hingað. Stjórinn, leikmennirnir og sú stefna sem félagið er á heilluðu mig,“ sagði Johnson við evertontv.

Johnson er fimmti leikmaðurinn sem bætist í hóp David Moyes í sumar. Áður höfðu Merlin Röhl, Hayden Hackney, Tyrique George og Christian Nørgaard bæst við leikmannahópinn.

McNeil yfirgefur Everton á sama tíma og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Crystal Palace.