Paul Scholes telur að Manchester United ætti að freista þess að fá Cristian Romero, varnarmann Tottenham, áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.
Scholes telur miðvarðarstöðuna vera helsta veikleika United og kom með nokkuð óvænt nafn þegar hann var spurður hvern félagið ætti að kaupa.
„Þið gætuð hlegið að þessu en Cristian Romero frá Tottenham. Mér líkar við hann, hann er brjálæðingur. Hann er mjög góður varnarmaður sem gerir stundum ótrúlega heimskulega hluti,“ segir Scholes.
Hann telur að Michael Carrick, stjóri United, gæti náð því besta fram í Argentínumanninum.
„Carrick er mjög rólegur og yfirvegaður og gæti kannski náð tökum á honum. Ég held að stuðningsmennirnir myndu kunna vel við hann.“
Romero hefur verið orðaður við brottför frá Tottenham í sumar og Scholes telur að hægt væri að fá hann fyrir 30-40 milljónir punda.
Scholes nefndi einnig Adam Wharton hjá Crystal Palace sem leikmann sem hann telur að yrði góð viðbót við lið United.