Paul Pogba er á leið frá Monaco eftir að félagið ákvað að rifta samningi hans í kjölfar enn einna meiðsla, samkvæmt fjölmiðlum í Frakklandi.
Pogba gekk til liðs við Monaco á frjálsri sölu síðasta sumar og samdi til ársins 2027. Endurkoma hans á völlinn hefur hins vegar ekki gengið sem skyldi og lék hann aðeins sex keppnisleiki fyrir félagið, samtals 115 mínútur.
Hinn 33 ára Pogba varð fyrir nýjum vöðvameiðslum á undirbúningstímabilinu og samkvæmt L'Equipe og fleiri frönskum miðlum hefur Monaco nú ákveðið að binda enda á samstarfið.
Óvíst er hvað tekur við hjá Pogba og hvort hann hyggist halda ferlinum áfram.
Pogba var á sínum tíma dýrasti knattspyrnumaður heims þegar Manchester United keypti hann frá Juventus fyrir 105 milljónir evra árið 2016. Síðari ár ferilsins hafa hins vegar einkennst af meiðslum og leikbanni eftir fall á lyfjaprófi.