433

Regla hjá Maresca kemur í veg fyrir að Haaland geti orðið fyrirliði City

Mynd
Getty Images

Enzo Maresca, nýr knattspyrnustjóri Manchester City, hefur útskýrt hvers vegna Erling Haaland er ólíklegur til að taka við fyrirliðabandinu hjá félaginu.

Haaland er hluti af fyrirliðahópi City og var meðal fyrstu leikmanna sem höfðu samband við Maresca eftir að hann tók við af Pep Guardiola. Norðmaðurinn hefur skorað 162 mörk fyrir félagið á fjórum árum en það gæti, á skondinn hátt, unnið gegn honum í baráttunni um fyrirliðabandið.

Maresca segir að hann hafi haft þá reglu hjá Leicester og Chelsea að fyrirliðinn komi að hliðarlínunni eftir að liðið skorar til að fá leiðbeiningar frá þjálfarateyminu.

„Ef hann sjálfur skorar má hann auðvitað fagna. En ef Erling er fyrirliðinn þá erum við í vandræðum,“ sagði Maresca léttur í bragði.

Ruben Dias er talinn líklegastur til að taka við bandinu og Maresca ætlar að halda áfram að nýta fyrirliðann með þessum hætti.

Hann segir að jafnvel stutt samtal eftir mark geti nýst til að gera taktískar breytingar og koma skilaboðum til leikmanna inni á vellinum.