433

Palhinha klár í að fara til Aston Villa

Mynd

Joao Palhinha er opinn fyrir því að ganga til liðs við Aston Villa á láni frá Bayern München, samkvæmt heimildum The Sun.

Hinn 31 árs gamli miðjumaður var á láni hjá Tottenham á síðasta tímabili en framtíð hans hjá Bayern virðist enn óljós.

Aston Villa er sagt hafa áhuga á að fá Portúgalann til liðs við sig og leikmaðurinn sjálfur er sagður tilbúinn að skoða þann möguleika.

Newcastle hefur einnig verið orðað við Palhinha og því gæti skapast samkeppni um þjónustu hans áður en félagaskiptaglugganum verður lokað.

Palhinha hefur mikla reynslu úr ensku úrvalsdeildinni en áður en hann gekk til liðs við Bayern lék hann með Fulham og vakti þar mikla athygli fyrir frammistöðu sína á miðjunni.