Ronald Araujo mun leika í treyju númer 33 hjá Liverpool eftir að hafa gengið til liðs við félagið á láni frá Barcelona.
Liverpool hefur möguleika á að kaupa hinn 27 ára gamla miðvörð fyrir um 47 milljónir punda að tímabilinu loknu.
Araujo lék í treyju númer fjögur hjá Barcelona en Virgil van Dijk ber það númer hjá Liverpool. Úrúgvæinn valdi þess í stað númer 33, sem hefur sérstaka merkingu fyrir hann.
„Þetta er númer sem mér líkar við og er sérstakt fyrir mig. Þegar ég lék minn fyrsta leik sem atvinnumaður var ég einmitt í þessu númeri,“ sagði Araujo.
Hann segir númerið einnig tengjast trú sinni og sambandi sínu við Jesú og Guð. Araujo ræddi valið við fjölskyldu sína og vini áður en ákvörðunin var tekin.
Araujo gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í æfingaleik gegn Como á sunnudag.