433

Muhamed ætlar ekki að fyrirgefa hnefahöggið í Keflavík - „Það þarf tvo til að dansa tangó“

Mynd

Keflavík er að reyna að selja Muhamed Alghoul, sóknarsinnaða miðjumann liðsins. Alghoul er nefbrotinn eftir að hafa verið sleginn á æfingu. Þetta kom fram í Dr. Football hlaðvarpinu í dag.

Alghoul er öflugur leikmaður sem hefur reynst Keflavík vel síðustu ár en honum og Alpha Conteh lenti saman á æfingu á dögunum. Eftir einhvern hita ákvað Conteh að slá til Alghoul sem nefbrotnaði.

Bróðir hans Khalid, var einnig í herbúðum Keflavíkur og var viðloðin þessi átök. Keflavík hefur nú þegar rift samningi hans og leitar leiða til að losna við Muhamed.

„Hann vill ekki fyrirgefa Conteh þetta, hann þarf líka að líta í eigin barm. Það þarf tvo til að dansa tangó, og það var þannig þarna," sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson í Dr. Football í dag.

Hrafnkell segir Keflavík vilja selja Muhamed áður en félagaskiptaglugginn lokar annað kvöld og mögulega innan Íslands. 

Conteh hefur spilað síðustu tvo leiki Keflavíkur eftir atvikið kom upp en Muhamed hefur ekki ekki spilað en nefbrotið hefur þar möguleg áhrif.