433

Liverpool á fullu að skoða markaðinn eftir komu Araujo

Mynd

Liverpool er áfram virkt á leikmannamarkaðnum eftir að hafa fengið Ronald Araujo að láni og félagið leggur nú áherslu á að styrkja kantstöðurnar.

Félagið hefur átt fyrstu viðræður við Paris Saint-Germain um Bradley Barcola en möguleg kaup eru talin erfið vegna þess að PSG verðmetur franska sóknarmanninn á um 145 milljónir punda.

Koma Araujo hefur ekki áhrif á möguleika Liverpool á frekari kaupum þar sem hann kemur á láni án lánsgjalds. Liverpool vill þó ekki greiða of mikið fyrir leikmenn og ætlar að halda sig við eigin stefnu um fjárhagslega sjálfbærni.

Liverpool hefur einnig kannað möguleikann á að fá Ibrahim Mbaye, liðsfélaga Barcola hjá PSG.

Mbaye er aðeins 18 ára og möguleg kaup á honum eru sögð algjörlega óháð áhuga Liverpool á Barcola.