Neymar gæti verið á leið til Inter Miami þegar samningur hans við Santos rennur út um áramótin.
Fyrrum brasilíski landsliðsmaðurinn Felipe Melo segist hafa fengið þær upplýsingar að Neymar muni halda til Miami í janúar. Ef af verður myndi hann sameinast á ný Lionel Messi og Luis Suarez, fyrrum samherjum sínum hjá Barcelona.
Þremenningarnir mynduðu hið fræga MSN-sóknartríó hjá Barcelona á árunum 2014 til 2017 og unnu meðal annars Meistaradeildina og tvo spænska meistaratitla saman.
Neymar, sem er 34 ára, hefur einnig verið orðaður við Galatasaray en Inter Miami virðist vera raunhæfur möguleiki.
David Beckham, einn eigenda Inter Miami, hefur þegar fengið nokkrar fyrrum stjörnur Barcelona til félagsins og möguleg koma Neymar myndi bæta enn einu stóra nafninu við þann hóp.