Manchester City hefur sett Alexis Mac Allister, miðjumann Liverpool, á lista yfir mögulega arftaka Rodri, samkvæmt Talksport.
Rodri er sagður nálægt því að ganga til liðs við Barcelona en viðræður um 55 milljóna punda kaup eru langt komnar. City hefur því unnið að því að styrkja miðjuna og keypti Elliot Anderson fyrr í sumar auk þess sem viðræður við Lille um Ayyoub Bouaddi eru langt komnar.
Mac Allister er eitt þeirra nafna sem komið hafa til umræðu hjá City en félagið hefur þó ekki haft samband við Liverpool.
Adam Wharton hjá Crystal Palace og Enzo Fernandez hjá Chelsea eru einnig á lista City. Fernandez gæti þó kostað um 120 milljónir punda og því er Mac Allister talinn hagkvæmari kostur.
Argentínumaðurinn á tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool en hann gekk til liðs við félagið frá Brighton árið 2023.