Inter hefur hafið viðræður á ný við Tottenham um kaup á enska landsliðsmanninum Djed Spence.
Ítalíumeistararnir eru tilbúnir að greiða á bilinu 25 til 30 milljónir punda fyrir þennan 26 ára gamla bakvörð, sem er opinn fyrir því að yfirgefa Tottenham í sumar.
Spence lék alla sjö leiki Englands á HM í sumar, þar af fjóra í byrjunarliðinu, þegar liðið hafnaði í þriðja sæti. Hann á þó ekki fast sæti í byrjunarliði Tottenham.
Hann gæti hentað 3-5-2 leikkerfi Cristian Chivu hjá Inter vel, enda getur hann leikið bæði sem bakvörður og vængbakvörður báðum megin.
Spence þekkir einnig ítalska boltann vel eftir lánsdvöl hjá Genoa árið 2024.