433

Gunnar hneykslaður og biður um útskýringar - „Ég botna ekki í því fyrir mitt litla líf“

Mynd
Skjáskot: Svellið

Gunnar Jarl Jónsson, einn besti dómari sem Ísland hefur átt og einnig hefur starfað sem sparkspekingur, var gestur í Innkastinu á Fótbolta.net í gær. 

Þar var farið yfir leikina í Bestu deild karla, til að mynda sigur Vals á Breiðablik á útivelli. Dagur Orri Garðarsson skoraði í leiknum, gekk hann í raðir Vals frá Stjörnunni eftir síðustu leiktíð og furðar Gunnar sig á að hann sé ekki að spila með uppeldisfélaginu í Garðabænum. 

„Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig Dagur Orri Garðarson, leikmaður fæddur árið 2005, er að spila með Val, uppalinn í Garðabænum, þegar það eru þrír leikmenn yfir þrítugt að spila með Stjörnunni?“ spurði Gunnar og hélt áfram.

„Ég botna ekki í því fyrir mitt litla líf. Það þarf einhver úr Garðabænum að hringja í mig og útskýra það.“

Dagur Orri hefur skorað tvö mörk í átta leikjum í Bestu deildinni í sumar.