Knattspyrnusamband Suður-Kóreu hefur beðist afsökunar eftir að sambandið var sakað um að hafa útvegað erlendum knattspyrnudómurum kynlífsþjónustu.
Suður-kóreska sjónvarpsstöðin JTBC greindi frá því að slíkt hefði gerst ítrekað árin 2011 og 2012 þegar erlendir dómarar komu til landsins vegna landsleikja, meðal annars í undankeppni HM 2014 og Ólympíuleikanna 2012.
Sambandið hefur ekki svarað ásökununum efnislega en sendi frá sér yfirlýsingu þar sem beðist var afsökunar vegna málsins. Sambandið tók jafnframt skýrt fram að ekkert slíkt ætti sér stað í dag.
„Við biðjumst innilega afsökunar á þeim áhyggjum sem ýmis mál tengd sambandinu hafa valdið,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.
Málið kemur upp á erfiðum tíma fyrir sambandið, en lögregla gerði einnig húsleit á skrifstofum þess í tengslum við rannsókn á ráðningu Hong Myung-bo, fyrrverandi landsliðsþjálfara.