433

Flytur frá Manchester á Suðurströndina

Mynd
Divin Mubama.

Southampton hefur fengið Divin Mubama, 21 árs gamlan framherja Manchester City, á lánssamningi sem gildir út tímabilið.

Mubama lék með Stoke á láni á síðustu leiktíð og skoraði fimm mörk í 28 leikjum. Hann meiddist þó illa á miðju tímabili sem hafði mikil áhrif.

Hann hefur verið með Manchester City á undirbúningstímabili liðsins í Asíu og vakið athygli. Skoraði kappinn þá gegn Inter og úrvalsliði suðurkóresku deildarinnar. 

Þá lagði Mubama upp mark í 3-1 sigri á Atletico Madrid um helgina.