Sheffield United er nálægt því að fá Kalvin Phillips aftur frá Manchester City.
Phillips lék með Sheffield United á láni seinni hluta síðustu leiktíðar en meiðsli og leikbann gerðu það að verkum að hann kom aðeins við sögu í þremur leikjum.
Þrátt fyrir það vill Chris Wilder, stjóri Sheffield United, fá þennan þrítuga miðjumann aftur til félagsins og er samkomulag svo gott sem í höfn. Reiknað er með að um annað lán verði að ræða.
Phillips á tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester City en er langt frá byrjunarliðinu þar. Hann hefur einnig verið lánaður til West Ham og Ipswich undanfarin ár.
Phillips lék 31 landsleik fyrir England á árunum 2020 til 2023 en hefur átt erfitt uppdráttar frá því hann yfirgaf Leeds og gekk til liðs við City árið 2022.