Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur komið Gianni Infantino, forseta FIFA, til varnar eftir mikla gagnrýni á Svisslendinginn undanfarna daga.
Infantino hefur verið undir miklum þrýstingi eftir að áform FIFA um að selja einkafjárfestum hlut í HM fóru út um þúfur. UEFA, AFC og Concacaf sendu frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem Infantino var meðal annars sakaður um að hafa brugðist trausti knattspyrnuhreyfingarinnar.
Trump telur hins vegar að það væru stór mistök að skipta um forseta hjá FIFA.
„FIFA myndi gera hræðileg mistök ef það myndi, af einhverjum ástæðum, íhuga að skipta Gianni Infantino út,“ skrifaði Trump á Truth Social.
Hann hrósaði Infantino fyrir störf sín og sagði nýafstaðið heimsmeistaramót hafa verið það farsælasta frá upphafi.
Trump og Infantino hafa myndað náið samband undanfarin misseri í tengslum við heimsmeistaramótið í Norður-Ameríku. Þeir hittust ítrekað í aðdraganda mótsins og sátu meðal annars saman á úrslitaleiknum.
Óvíst er nú hvort aukinn þrýstingur innan alþjóðlegrar knattspyrnu muni hafa áhrif á framtíð Infantino í embætti.