433

Cristiano Ronaldo varpar sprengju - Sjáðu myndina

Mynd

Cristiano Ronaldo og Georgina Rodriguez virðast hafa gengið í hjónaband á laun.

Parið birti sameiginlega færslu á Instagram fyrir skömmu þar sem þau sýna gullhringi á baugfingrum sínum. 

Við myndina stóð einfaldlega „C❤️G“ og fékk færslan yfir milljón læk á örfáum mínútum.

Mynd

Miklar sögusagnir höfðu verið um að Ronaldo og Georgina hygðust gifta sig á Madeira um helgina en ekkert varð af þeirri stóru athöfn sem margir bjuggust við.

Nú virðist því sem parið hafi þess í stað haldið brúðkaupið í kyrrþey og tilkynnt um það eftir á.

Ronaldo og Georgina hafa verið saman frá árinu 2016 og trúlofuðu sig í ágúst á síðasta ári.